Mói hrekkjusvín

audiobook (Unabridged) Misskilinn snillingur

By Kristín Helga Gunnarsdóttir

cover image of Mói hrekkjusvín
Audiobook icon Visual indication that the title is an audiobook

Sign up to save your library

With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.

   Not today
Libby_app_icon.svg

Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.

app-store-button-en.svg play-store-badge-en.svg
LibbyDevices.png

Search for a digital library with this title

Title found at these libraries:

Loading...

Mói - Hrekkjusvín eða misskilinn snillingur

Flestir snillingar mannkynssögunnar hafa verið misskildir. Í raun hefur enginn kunnað að meta þá fyrr en þeir eru löngu dauðir. Það segir pabbi að minnsta kosti. Ég held að ég sé einn af þeim.

Mói hrekkjusvín er eyrnastór götustrákur sem heitir reyndar fullu nafni Marteinn Jörundur Marteinsson. Besti vinur hans, Byssu-Jói, risavaxinn leynikúreki og verndari Móa, er aldrei langt undan, nagar puntstrá, tyggur tóbak og segir: „Ó boj, MÓI!".

Mói fær óteljandi hugmyndir, flestar frábærar og aðeins örfáar sem eru ekkert sérstakar. Hann reynir að sigla á ísjaka til Ameríku og búa til heimagerð nagladekk. Stundum er svo mikið að gera hjá honum að hann gleymir skólatöskunni í skólanum.

Stundum bjargar hann lífi fólks hinu megin á hnettinum en samt fara allir á taugum þegar hann skrúfar í sundur raftæki eða hristir nokkra gosflöskur.

Einu sinni á ári fá allar mömmur hrekkjusvína á Íslandi nóg af þeim. Þá senda þær villingana sína á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn. Mömmurnar hvíla sig og hrekkjusvínin læra bænir og góða siði.

Þegar Mói hrekkjusvín, Orri prestsins og Byssu-Jói fara á kreik getur hvað sem er gerst, draugar fara á stjá í kirkjunni, peningar hverfa úr söfnunarbauknum og moldríkir kúrekar gera allt vitlaust í bíó. Allir þrír hlakka til að fara á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn og á meðan er rólegt í bænum.

Mói hrekkjusvín