Sign up to save your library
With an OverDrive account, you can save your favorite libraries for at-a-glance information about availability. Find out more about OverDrive accounts.
Find this title in Libby, the library reading app by OverDrive.
Search for a digital library with this title
Title found at these libraries:
Loading... |
Þegar ég kem heim stekk ég um alla stofuna og hlusta á háværa tónlist. Ég dansa eins og brjálæðingur og öskra með í lögunum. Ég hoppa í sófanum og það er eins og hjartað í mér sé að springa. Hann spurði sjálfur hvort við ættum að hittast á morgun! Hann bauð mér eiginlega að koma með sér niður á engið. Inga hefur aldrei verið ástfangin áður. En síðan hittir hún Marco, sem lítur nákvæmlega eins út og prinsinn í draumum hennar. Það er samt eitt vandamál, hún hefur þegar sagt já við að vera kærasta Alexanders og nú þarf hún að ljúga að bæði honum og Marco. Það er þá sem hún kemur sér í vandræði... Elskar mig, elskar mig ekki er sería um fjórar vinkonur og þeirra fyrstu reynslu af ástinni. Line Kyed Knudsen (f. 1971) kom fyrst fram sem höfundur barna- og ungmennabóka árið 2003. Line skrifaði bækurnar um Lísu og Emmu og einnig seríuna K fyrir Klara, sem hafa verið þýddar yfir á mörg tungumál á undanförnum árum og njóta gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Hún er nú orðin einn af langvinsælustu höfundum bóka fyrir þennan aldurshóp og hafa bækur hennar hlotið fjölda bókmenntaverðlauna.